Hoppa yfir valmynd
21. desember 2021 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Undanþágur frá sóttvarnaráðstöfunum fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki halda gildi

    - myndJohannes Jansson/norden.org

Heilbrigðisráðherra veitti síðastliðið vor undanþágur frá reglum um sóttvarnaaðgerðir fyrir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki svo unnt væri að halda starfsemi þeirra órofinni. Ráðherra hefur ákveðið að áður veittar undanþágur haldi gildi sínu þannig að hertar sóttvarnaráðstafanir raski ekki umræddri starfsemi. Sömu skilyrði fyrir undanþágum gilda og áður, en þær voru veittar að undangengnu samráði við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun. 

Ákvörðun um þessar undanþágur byggist á því að um sé að ræða samfélagslega ómissandi innviði sem mega ekki stöðvast vegna lífsbjargandi starfsemi, svo sem raforku, fjarskipta, samgangna, heilbrigðisstarfsemi, löggæslu, sjúkraflutninga og slökkviliða. Einnig fellur hér undir starfsemi fyrirtækja sem telst kerfislega og efnahagslega mikilvæg, svo sem til að tryggja innviði, sorphirðu, aðföng, mætvælaframleiðslu, flutninga matvæla, lyfja og annarra nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum