Hoppa yfir valmynd
23. desember 2021 Innviðaráðuneytið

400 milljóna viðbótarframlag Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk árið 2021

Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 10. desember sl. um úthlutun sérstaks viðbótarframlags á árinu 2021 vegna þjónustu við fatlað fólk. Nemur upphæð framlagsins 400 milljónum króna.

Á grundvelli 2. gr. reglugerðar nr. 1291/2021 um framlög Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2021 er heimilt að veita sérstök viðbótarframlög til þeirra þjónustusvæða þar sem kostnaður við reksturinn er verulega íþyngjandi. Í greiðslu- og rekstraráætlun sjóðsins 2021 er gert ráð fyrir að viðbótarframlög á árinu geti numið allt að 400 m.kr. 

Útreikningur á skiptingu framlagsins byggist á rekstrarniðurstöðu þjónustusvæða á árinu 2020 en starfshópur um greiningu á kostnaðarþróun í þjónustu við fatlað fólk, skipaður af félags- og barnamálaráðherra í apríl 2021, hefur lagt mikla vinnu í að afla og samræma þau gögn.

Framlagið verður greitt út á næstu dögum.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum