Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2022 Innviðaráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna fjarvinnslustöðva

Innviðaráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru vegna fjarvinnslustöðva, sbr. aðgerð B.8 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Markmið aðgerðarinnar er tvíþætt. Annars vegar að koma opinberum gögnum á stafrænt form og hins vegar að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni. Ráðuneyti og stofnanir sem ráðast í slík átaksverkefni utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um stuðning en úthlutað verður allt að 35 milljónum króna. Heimilt er að endurgreiða allt að 80% af kostnaði við hvert verkefni. Þá er heimilt að veita styrki til sama verkefnis til allt að fimm ára, með fyrirvara um fjárheimildir hvers árs.

Ráðuneyti og stofnanir ríkisins utan vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins geta sótt um. Stuðst er við þá skilgreiningu að vinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins nái suður og vestur yfir Suðurnes, austur fyrir Selfoss og norður að Borgarnesi, svokallað Hvítá-Hvítá svæði. Skipuð hefur verið þriggja manna valnefnd sem gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Byggðastofnun annast umsýslu umsókna um framlög fyrir hönd ráðuneytisins, veitir umsóknum viðtöku og gefur valnefnd umsagnir. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 14. febrúar 2022.

Þriggja manna valnefnd gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Valnefndina skipa þau Sigurður Árnason, formaður, Elín Gróa Karlsdóttir og Snorri Björn Sigurðsson. Með nefndinni starfa Gauti Daðason, lögfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Byggðastofnun annast fyrir hönd ráðuneytisins samningsgerð við styrkþega, umsýslu með greiðslum og eftirlit með framkvæmd verkefnis.

Fylgiskjöl

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum