Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Þörf fyrir fólk í bakvarðasveitina vegna aukins álags á heilbrigðisstofnunum

Þörf fyrir fólk í bakvarðasveitina vegna aukins álags á heilbrigðisstofnunum - myndStjórnarráðið

Heilbrigðisráðuneytið minnir enn á bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Þörf er á fleira heilbrigðisstarfsfólki á skrá sem hefur aðstæður til að veita liðsinni til að mæta vaxandi álagi á heilbrigðisstofnunum vegna fjölgunar Covid-19 smita. Annars vegar hefur innlögnum vegna Covid fjölgað nokkuð síðustu daga en það eru ekki síður forföll starfsfólks sem valda mönnunarvanda. Í morgun voru til að mynda 248 starfsmenn Landspítala Covid sýktir og í einangrun og við Sjúkrahúsið á Akureyri nærri 50 starfsmenn forfallaðir vegna Covid. Sem fyrr er jafnan mest þörf fyrir sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga og lækna en einnig er óskað eftir fólki á skrá úr öðrum heilbrigðisstéttum. Athygli er vakin á því að nemar í hjúkrunarfræði, læknisfræði og sjúkraliðanámi geta skráð sig í bakvarðasveitina.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum