Sigurjón Jónsson verður aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sigurjón Jónsson tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Millu Óskar Magnúsdóttur sem er í fæðingarorlofi. Sigurjón er með BSc próf í markaðsfræðum frá Auburn háskólanum í Alabama. Hann hefur á annað ár verið starfsmaður þingflokks Framsóknar og unnið að kynningarmálum og ýmsum öðrum verkefnum.
Sigurjón hefur víðtæka reynslu af markaðs og kynningarmálum sem og veflausnum í gegnum fyrri störf sín hjá NOVA, Sjóvá og 433.is.
Sigurjón er í sambúð með Tinnu Rún Davíðsdóttir Hemstock og eiga þau tvo syni.