Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2022 Innviðaráðuneytið

Viltu taka þátt í að einfalda regluverk og bæta þjónustu hins opinbera?

Innviðaráðuneytið og stofnanir þess óska eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk og bæta þjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess. Allir eiga kost á því að taka þátt í netkönnuninni til og með 6. maí nk. í samráðsgátt stjórnvalda.

Markmiðið er bæta þjónustu hins opinbera með því að greina hvort og hvar lagðar eru óþarfar, flóknar eða óljósar byrðar á einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög eða félagasamtök sem þurfa þjónustu eða leita erinda hjá ráðuneytinu eða stofnunum þess. 

Könnunin snýr að innviðaráðuneytinu og sjö fagstofnunum þess en þær eru: Byggðastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Skipulagsstofnun, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands.

Ábendingar geta verið af ýmsum toga og geta snúið að íþyngjandi reglum, skorti á leiðbeiningum eða upplýsingum, hvar þjónustuferlar gætu verið betri eða stafrænni eða hvort þjónustu vanti eða þurfi að breyta vegna breytinga í samfélaginu.

Verkefnið er ein af áherslum innviðaráðherra í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar um að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.

„Við fórum í sambærilegt átak fyrir tveimur árum og fengum fjölmargar gagnlegar ábendingar. Við gátum til að mynda nýtt nokkrar af ábendingunum í undirbúning að því að gera umgjörð almenns ökunáms stafræna frá upphafi til enda. Með aðstoð almennings, fyrirtækja og stofnana viljum við bæta þjónustu stjórnsýslunnar eins og kostur er og hvetjum fólk til að taka þátt í netkönnun ráðuneytisins,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.

Fyrir tveimur árum réðist ráðuneytið (þá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið) í fyrstu könnun af þessu tagi og bárust þá rúmlega 50 ábendingar sem unnið var úr bæði í stofnunum og ráðuneytinu í samræmi við aðgerðaáætlun þar að lútandi. Frá því að síðasta könnun var gerð hafa málaflokkar húsnæðis- og mannvirkjamála annars vegar og skipulagsmála hins vegar færst til ráðuneytisins.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum