Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2022 Innviðaráðuneytið

Drög að skýrslu starfshóps um smáfarartæki í samráðsgátt stjórnvalda

Drög að skýrslu starfshóps um smáfarartæki hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Öllum gefst kostur á að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að koma að athugasemdum rennur út 25. apríl nk.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði á dögunum starfshóp sem hefur það hlutverk að kortleggja stöðu smáfarartækja hér á landi og vinna tillögur til ráðherra að úrbótum. Skýrsludrögin sem nú eru birt til umsagnar hafa að geyma drög að sex tillögum til úrbóta er miða að því að auka öryggi notenda smáfarartækja og annarra vegfarenda auk þess að styðja við notkun fjölbreyttra umhverfisvænna fararskjóta með öruggum hætti. Í skýrsludrögunum er aðaláhersla lögð á rafhlaupahjól en það eru algengustu smáfarartækin í umferð. 

Starfshópurinn sem skipaður er fulltrúum innviðaráðuneytis, Samgöngustofu, Vegagerðarinnar, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar muni skila innviðaráðherra tillögum sínum til úrbóta í júní 2022.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum