Hoppa yfir valmynd
19. apríl 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kennsla í tölvulæsi fyrir eldra fólk

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur undirritað samninga við átta fræðsluaðila um kennslu í tölvulæsi fyrir eldra fólk í kjölfar útboðs Ríkiskaupa. Um er að ræða sérsniðna kennslu sem hjálpar eldra fólki um allt land að nýta sér þjónustu og rafræn samskipti á netinu með það að markmiði að draga úr félagslegri einangrun, njóta afþreyingar á netinu og auka notkun á þjónustusíðum. Markhópurinn er eldra fólk (eldri en 60 ára) sem hefur þörf á námskeiði í tæknilæsi á snjalltæki, til dæmis varðandi spjaldtölvur og snjallsíma. Námskeiðin fela í sér kennslu í notkun rafrænna skilríkja og vefsíðna sem nota þau, heimabanka, netverslun og fræðslu vegna samfélagsmiðla og efnisveitna. Þá verður farið yfir notkun á tölvupósti og önnur rafræn samskipti.  Boðið verður upp á námskeið á hverju landssvæði fyrir sig; Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi en námskeiðin á að halda á sem víðast í hverjum landshluta. Það er ánægjulegt að styðja þessa þjónustu og hvetja þannig til sí- og endurmenntunar á öllum stigum eins og áherslur ráðherra og ríkisstjórnar í stjórnarsáttmála segja til um.

Samningar voru undirritaðir við eftirfarandi aðila sem munu hafa umsjón með námskeiðunum og ráðuneytið hvetur fólk til þess að sækja þessa þjónustu:

  • Fræðslunetið-símenntun á Suðurlandi
  • Austurbrú ses
  • Farskólinn-miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra
  • Fræðslumiðstöð Vestfjarða
  • Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
  • Promennt ehf
  • Símenntunarmiðstöð Vesturlands
  • Þekkingarnet Þingeyinga

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum