Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2022 Forsætisráðuneytið

Vistheimili á Hjalteyri og vöggustofur í Reykjavík falli undir lög um sanngirnisbætur

Lög um sanngirnisbætur verða endurskoðuð með það að markmiði að mál sem tengjast vistheimilinu á Hjalteyri og vöggustofum á vegum Reykjavíkurborgar falli undir lögin. Tillaga þess efnis frá Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og Jóni Gunnarssyni, dómsmálaráðherra var samþykkt á fundi ríkisstjórnar í morgun. Með endurskoðuninni verður tryggður réttur fyrrum vistmanna til að fá greiddar bætur vegna illrar meðferðar eða ofbeldis á meðan vistuninni stóð. Ekki mun fara fram rannsókn á heimilinu á Hjalteyri en Reykjavíkurborg hefur óskað eftir heimild stjórnvalda til þess að framkvæma skoðun á aðstæðum á vöggustofum borgarinnar.

Brýnt þykir að fylgja þeirri stefnu sem hefur verið mörkuð um framkvæmdina við greiðslu sanngirnisbóta og ljúka þeirri vegferð sem lagt var upp með í upphafi.  Mikilvægt þykir að jafnræðis verði gætt við meðferð þeirra mála sem hlotið hafa könnun vistheimilanefndar, þannig að einstaklingar sem bjuggu við sambærilegar aðstæður geti leitað úrlausnar sinna mála með einföldum og skilvirkum hætti.

Vistheimilið á Hjalteyri

Dómsmálaráðherra skipaði starfshóp í desember á síðasta ári sem hafði það hlutverk að afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga um starfsemi heimilisins á Hjalteyri. Niðurstaða starfshópsins var sú að hann skorti fullnægjandi lagaheimildir til að kanna starfsemi heimilisins og því yrði að lögfesta heimildir til handa starfshópnum ef ætlunin væri að rannsaka aðstæður með ýtarlegum hætti. Talið er að nægileg vitneskja liggi fyrir um tíðarandann hér áður, viðhorf, uppbyggingu og starfsemi stofnana og heimila þar sem börn voru vistuð og það sem fór almennt úrskeiðis eða betur mátti fara. Ekki verður því séð að rök standi til þess að sérstök rannsókn á heimilinu á Hjalteyri þurfi að fara fram, heldur verði fremur stuðst við þá málsmeðferð sem mörkuð var með lögum nr. 148/2020, þannig að greiddar verði út sanngirnisbætur án frekari könnunar á vistheimilinu. 

Vöggustofur í Reykjavík

Hvað varðar vöggustofur sem reknar voru af hálfu Reykjavíkurborgar á síðustu öld hyggst borgin skipa  rannsóknarnefnd til að gera úttekt á starfseminni, þar sem m.a. yrði gerð nánari grein fyrir tildrögum þess að vöggustofurnar voru settar á fót og hver afdrif þeirra barna voru sem þar voru vistuð. Sú ákvörðun liggur hjá Reykjavíkurborg og frumvarp forsætisráðherra þess efnis er nú til meðferðar á þingi. Endurskoðun á lögum um sanngirnisbætur mun taka til greiðslu mögulegra bóta vegna vöggustofanna sem leitt gæti af rannsókn borgarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum