Hoppa yfir valmynd
2. maí 2022 Matvælaráðuneytið

Sameining Landgræðslu og Skógræktar í forathugun

Sameining Landgræðslu og Skógræktar í forathugun  - myndiStock/Edda Dupree
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur látið hefja forathugun á sameiningu tveggja lykilstofnana í loftslagsmálum, Skógræktarinnar og Landgræðslunnar.

Stofnanirnar vinna báðar að vistvernd og nýtingu lands og vinna að mörgu leyti hliðstæð verkefni sem snúa að losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda.
Landgræðslan og Skógræktin eiga báðar ríka og farsæla sögu um samstarf með grasrótarsamtökum, almenningi og landeigendum. Það umhverfi sem stofnanirnar vinna í hefur tekið hröðum breytingum, og væntingar almennings og stjórnvalda hafa breyst. Ákvörðun matvælaráðherra er tekin með tilliti til þessa, augljósrar skörunar verkefna og mikillar samlegðar.

Samræmd stefnumótun

Samkvæmt nýjum lögum um skógrækt og landgræðslu skal gera stefnumarkandi áætlanir um landgræðslu og skógrækt til lengri tíma. Í matvælaráðuneytinu er jafnframt unnið að samræmingu tillagna í eina heildaráætlun sem nær m.a. yfir verndun og endurheimt vistkerfa, náttúrumiðaðar lausnir í loftslagsmálum, og sjálfbæra landnýtingu. Þessi nálgun mun einfalda til muna forgangsröðun og þannig stuðla að aukinni skilvirkni og auknum árangri.

Sameinuð fagþekking myndar öfluga stofnun

Síðustu ár hafa bæði Landgræðslan og Skógræktin aukið ráðgjöf til landeigenda og unnið að mörgum samvinnuverkefnum með þeim. Þar má m.a. nefna skógrækt á lögbýlum og verkefnið Bændur græða landið. Sérfræðingar beggja stofnana búa yfir mikilli sérhæfðri þekkingu og öflugar rannsóknir á vistkerfum, gróðurfari og loftslagi eru stundaðar af beggja hálfu.

„Með því að sameina fagþekkingu og krafta þessara stofnana verður til öflug stofnun sem sinnir ráðgjöf við nýtingu lands og styður við eflingu allra vistkerfa og landgæða til framtíðar” segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum