Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2022 Utanríkisráðuneytið

Ársskýrsla utanríkisráðherra 2021

Ársskýrsla utanríkisráðherra fyrir árið 2021 er komin út. Markmiðið með útgáfunni er að auka gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna. Þá er þeim ætlað að vera grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera. Í skýrslunum er sérstaklega fjallað um viðspyrnuaðgerðir vegna heimsfaraldursins á árinu 2021.

Ársskýrslur ráðherra eru birtar samkvæmt 62. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál. Í lögunum er kveðið á um að hver ráðherra skuli birta slíka skýrslu þar sem gera skal grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og bera saman við fjárheimildir fjárlaga. Þá skal í ársskýrslunum gera grein fyrir fjárveitingum til einstakra ríkisaðila og verkefna og leggja mat á ávinning af þeim með tilliti til aðgerða og markmiða sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun. Ársskýrslur allra ráðherra ríkisstjórnarinnar frá 2017 má nálgast hér

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum