Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2022 Innviðaráðuneytið

Staða forstjóra Byggðastofnunar laus til umsóknar

Staða forstjóra Byggðastofnunar hefur verið auglýst. Leitað er eftir framsýnum leiðtoga til að takast á við áskoranir á sviði byggðaþróunar. Einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á þróun og framtíð byggðamála á Íslandi, metnað til að veita framúrskarandi þjónustu og ná árangri í þágu almennings og atvinnulífs.

Byggðastofnun er staðsett á Sauðárkróki. Hjá stofnuninni starfa 25 starfsmenn í fjölbreyttum störfum. Forstjóri Byggðastofnunar stýrir stofnuninni og ber ábyrgð á rekstri hennar, þjónustu og árangri. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Stofnunin fjármagnar og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun atvinnulífs á landsbyggðunum. Stofnunin annast atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa og fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Byggðastofnun vinnur að stefnumótandi byggðaáætlun fyrir allt landið í samráði við innviðaráðuneytið.

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun á háskólastigi er æskileg
  • Reynsla af stjórnun, stefnumótun og áætlanagerð sem nýtist í starfi
  • Þekking á fjármálum og lánastarfsemi
  • Afburða hæfni til samstarfs og samskipta
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Framsýni, drifkraftur, metnaður og skipulagshæfni
  • Hæfni til að tjá sig og eiga samskipti í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Ráðuneytið hvetur alla hæfa einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf um hvers vegna sótt er um starfið og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í starfi forstjóra Byggðastofnunar. Umsókn skal skila með tölvupósti á [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 25. júlí nk.

Ráðherra innviðaráðuneytis skipar forstjóra Byggðastofnunar til fimm ára í senn að fenginni tillögu stjórnar Byggðastofnunar. 

Nánari upplýsingar  veitir Sigrún Þorleifsdóttir, mannauðsstjóri innviðaráðuneytis í síma 545 8200.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum