Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2022 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra var farþegi í fyrsta rafmagnsfluginu á Íslandi

Friðrik Pálsson, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Matthías Sveinbjörnsson og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. - mynd

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í dag farþegi í fyrsta rafmagnsfluginu á Íslandi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fór einnig í rafmagnsflugferð frá Reykjavíkurflugvelli.

Félagið Rafmagnsflug ehf. flutti fyrstu rafmagnsflugvélina til landsins með það að markmiði að taka frumkvæði í orkuskiptum í flugi, þjálfa starfsfólk í þessari nýju tækni og kynna hana fyrir landsmönnum. Vélin er tveggja sæta af gerðinni Pipistrel og er framleidd í Slóveníu.

Rafmagnsflug ehf. var stofnað af Matthíasi Sveinbjörnssyni og Friðriki Pálssyni í árslok 2021 en þeir hafa unnið að því síðastliðin þrjú ár að fá rafmagnsflugvélina til landsins. Bakhjarlar eru fyrirtæki og einstaklingar sem vilja leggja sitt af mörkum til að flýta orkuskiptum í flugi.

  • Forsætisráðherra var farþegi í fyrsta rafmagnsfluginu á Íslandi - mynd úr myndasafni númer 1

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum