Hoppa yfir valmynd
26. ágúst 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Heildstæð stefna mótuð í málefnum innflytjenda og flóttafólks

Skipaður verður stýrihópur um mótun heildstæðrar stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks hér á landi. Tillaga félags- og vinnumarkaðsráðherra þess efnis var samþykkt í ráðherranefnd um málefni innflytjenda og flóttafólks fyrr í vikunni og kynnt fyrir ríkisstjórn í morgun.

Stýrihópurinn er skipaður á grundvelli stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar en þar er kveðið á um að mótuð verði skýr og heildstæð stefna í málefnum útlendinga á Íslandi. Stefnunni er ætlað að tryggja að fólk sem sest hér að hafi tækifæri til að aðlagast og taka virkan þátt í samfélaginu, þar með talið á vinnumarkaði.

Við mótun stefnunnar verður meðal annars farið í saumana á því með hvaða hætti móttöku fólks skuli háttað, hvort sem um er að ræða flóttafólk eða innflytjendur hér á landi. Einnig er gert ráð fyrir að í stefnunni komi fram hvernig möguleikum fólks til atvinnuþátttöku verði háttað. Sérstök áhersla verður lögð á félagsleg réttindi, heilbrigðisþjónustu, menntun og atvinnuþátttöku með það að markmiði að á Íslandi verði fjölmenningarsamfélag þar sem grundvallarstefin eru jafnrétti, réttlæti og virðing fyrir manneskjum.

Við vinnuna verður horft til margvíslegra þátta og má þar nefna stuðning við börn af erlendum uppruna, túlkaþjónustu, þjónustu við fylgdarlaus börn á flótta og þátttöku innflytjenda í stjórnmálum og samfélagsumræðu. Einnig verður sem dæmi litið til aðgengis að íslenskunámi og samfélagsfræðslu sem kemur til móts við fjölbreyttan bakgrunn fólks.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið mun leiða stýrihópinn en í honum verða einnig fulltrúar frá fimm öðrum ráðuneytum, samtökum aðila vinnumarkaðarins, félagasamtökum, háskólasamfélaginu og fleiri. Gert er ráð fyrir að stýrihópurinn feli undirhópum að fjalla um tiltekin atriði og að þar sitji eftir atvikum fulltrúar stofnana sem fara með málefni innflytjenda og útlendinga, sem og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks, hinsegin fólks, innflytjenda og samtaka um kynjajafnrétti.

Samhliða þessu mun vinnuhópur um atvinnuréttindi útlendinga hefja störf og var tillaga þess efnis samþykkt á fundi ráðherranefndar um málefni innflytjenda og flóttafólks og kynnt fyrir ríkisstjórn í morgun. Hópnum er ætlað að samhæfa vinnu þeirra ráðuneyta sem koma að málaflokknum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum