Hoppa yfir valmynd
1. september 2022 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur - myndiStock/naturalbox

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1.september. Matvælaráðuneytinu bárust 99 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 23.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

  • Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð sem við lok tilboðsfrests var 336 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði, þ.e. 336 kr./ltr.
  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 23.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 99.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði/hámarksverði var 26.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.081.826 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 4.690.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 1.081.810 lítrar að andvirði 363.488.160,- kr.
  • Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 54.083 líter. Fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 9.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum