Hoppa yfir valmynd
1. september 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022 kynntar

Þjórsárver. - myndHugi Ólafsson

Gróðursetning á marhálmi í Danmörku, endurheimt á framræstu votlendi á Íslandi og elsta UNESCO-lífhvolf sem enn er til í Svíþjóð eru meðal tilnefninga til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár.

Alls eru sex verkefni tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs að þessu sinni. Þema verðlaunanna í ár er Náttúrumiðaðar lausnir – alhliða svar við hinum stóru umhverfisáskorunum samfélagsins, en tilkynnt var um tilnefningarnar í tengslum við málþing um náttúrumiðaðar lausnir í Norðurlandahúsinu í Færeyjum í dag.

Tilnefningar hljóta:

Danmörk
Sund Vejle Fjord — endurheimt vatnasvæðis sem var hætt komið með náttúrulegum aðferðum.

Finnland
Virho rf – Samtök um vernd straumvatna

Grænland
Louise Lynge — fyrir hönnun sem byggir á „zero waste“ hugmyndafræði

Ísland
Votlendissjóður

Svíþjóð
Kristianstads Vattenrike — elsta UNESCO lífhvolfið í Svíþjóð

Álandseyjar
Sveitarfélagið Mariehamn —votlendisgarðurinn „Nabbens våtmark

Verðlaunin verða afhent 1. nóvember í Helsinki í tengslum við þing Norðurlandaráðs.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum