Hoppa yfir valmynd
6. september 2022 Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ríkisstjórnin styrkir Fimleikasamband Íslands vegna Evrópumótsins í hópfimleikum

Kvennalið Íslands varð Evrópumeistari í hópfimleikum árið 2021. Mynd/Fimleikasamband Íslands - mynd

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um að veita Fimleikasambandi Íslands 5 m.kr. af ráðstöfunarfé vegna Evrópumótsins í hópfimleikum.

Evrópumótið verður haldið í Lúxemborg 14. – 17. september nk. Fimleikasambandið ætlar að vekja athygli á mótinu og skapa gott andrúmsloft fyrir íslenska áhorfendur á mótsstað.

Fyrirhugað er að setja upp aðstöðu í Smáralind þar sem sýnt verður frá mótinu og fimleikar kynntir gestum og gangandi. Þá stendur til að vera með svæði fyrir íslenska áhorfendur í Lúxemborg þar sem boðið verður upp á skemmtidagskrá.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum