Hoppa yfir valmynd
15. september 2022 Innviðaráðuneytið

Áætluð tekjujöfnunarframlög og framlög til útgjaldajöfnunar endurskoðuð

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga ársins 2022. Tillagan er samþykkt á grundvelli 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna 1.400 m.kr.

Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Framlagið er einungis greitt hafi sveitarfélög fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars. Fyrir 1. október koma ¾ hlutar af áætluðum framlögum til greiðslu samtals 1.050 m.kr. Uppgjör framlaganna fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.

Framlög til útgjaldajöfnunar fyrir árið 2022 endurskoðuð

Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun framlaga til útgjaldajöfnunar úr sjóðnum á árinu 2022, skv. reglugerð nr. 1088/2018. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum