Hoppa yfir valmynd
15. september 2022 Innviðaráðuneytið

Framlög til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts á árinu 2023

Frá Ísafirði Mynd/Hugi Ólafsson - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þess efnis að framlög til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts sbr. reglugerð nr. 80/2001, nemi samtals um 6.244,5 m.kr. árið 2023. Um 60% af áætlun um úthlutun framlaga ársins komu til greiðslu mánuðina febrúar til júní eða samtals um 3.746 m.kr. Áætlað uppgjör framlaganna, sem nemur 2.498 m.kr., fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september, 833 m.kr. í hvert sinn.

Útreikningur framlaganna byggist á upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts í sveitarfélögum 31. desember 2021, sem gilda fyrir árið 2022. Við útreikning framlaganna er jafnframt tekið mið af álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2022.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum