Hoppa yfir valmynd
16. september 2022 Dómsmálaráðuneytið

Ingvar S. Birgisson ráðinn aðstoðarmaður dómsmálaráðherra

Ingvar S. Birgisson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.

Ingvar er með B.A. próf frá lagadeild Háskóla Íslands, lauk þar meistaraprófi í lögfræði árið 2018 og fékk réttindi fyrir héraðsdómi árið 2019.

Ingvar var blaðamaður á Morgunblaðinu á árunum 2014-2016, var fulltrúi hjá Nordik lögfræðiþjónustu 2016-2019 og hjá Íslensku lögfræðistofunni frá árinu 2019. Á þessu ári settist hann í stjórn Ríkisútvarpsins ohf.

Ingvar var formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík árin 2013-2015 og formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna frá 2017-2019.

Ingvar mun starfa við hlið Brynjars Níelssonar sem aðstoðarmaður og hann kemur í stað Teits Björns Einarssonar sem hverfur til starfa sem aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum