Hoppa yfir valmynd
19. september 2022 Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Fjallað um öryggi og grænar lausnir á siglingaráðstefnu 29. september

Alþjóðasiglingadagurinn er í ár helgaður öryggi og grænum lausnum í siglingum. Af því tilefni verður ráðstefna haldin fimmtudaginn 29. september undir yfirskriftinni Stolt siglir fleyið mitt á Grand hótel í Reykjavík frá kl. 13-16. Ráðstefnan er haldin af innviðaráðuneyti og Siglingaráði í samstarfi við Samgöngustofu, Grænu orkuna og umhverfis- og orku- og loftslagsráðuneytið.

Markmið ráðstefnunnar er að kynna nýsköpun og nýjar lausnir í sjósókn og siglingum sem draga úr umhverfisáhrifum og/eða auka öryggi sjófarenda, þ.m.t. orkuskipti, bætta orkunýtingu og siglingaöryggi. Fjölmörg fyrirtæki munu halda fyrirlestra um lausnir sínar og framtíðarsýn.

Öll eru velkomin á ráðstefnuna en skráning fer fram á vef Samgöngustofu. Fundarstjóri er Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

Dagskrá

  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, setur ráðstefnuna.
  • Leiðin til orkuskipta. Zero emission journey of the Norwegian maritime sector
    Kristina Storegjerde Skogen, Ocean Hyway Cluster, Noregi.
  • Ankeri – Gögn til gagns: Að finna hentugustu skipin fyrir alþjóðleg flutningaskipafyrirtæki
    Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri & einn stofnenda Ankeri Solutions.
  • Grænna varaafl í öruggum skrefum
    Linda Fanney Valgarðsdóttir, framkvæmdastýra Alor ehf.
  • Sidewind vindmyllugámar
    Óskar Svavarsson og María Kristín Þrastardóttir, stofnendur Sidewind ehf.
  • Leiðbeinandi siglingakerfi fyrir aukið öryggi og grænni siglingar
    Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring Marine
  • Kaffihlé
  • Umhverfisvænni veiðarfæri
    Einar Skaftason, veiðarfærahönnuður hjá Hampiðjunni
  • Ljósvarpan
    Torfi Þórhallsson, Optitog ehf.
  • Strandvari, fyrir öryggi og umhverfið
    Þórarinn Heiðar Harðarson, framkvæmdastjóri Strandsýn ehf.
  • Kolefnislausar fiskveiðar - Raunhæft markmið, hvernig og hvenær?
    Hallmar Halldórs, Clara energy
  • Með Stanley yfir Breiðafjörð
    Tinna Rún Snorradóttir
    , rannsóknarstjóri Bláma 
  • Straumhvörf á sjó – rafvæðing minni farþegabáta
    Árni Sigurbjarnarson og Oddvar Haukur Árnason, Brim Explorer / Ocean e-Connect
  • Fjármögnun nýsköpunar og þróunar
    Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri ísl. Nýorku 
  • Samantekt og ráðstefnuslit
    Ásta Þorleifsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu og varaformaður Siglingaráðs

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum