Hoppa yfir valmynd
7. október 2022 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vegna fréttaflutnings í tengslum við greiðslur til framkvæmdastjóra Úrvinnslusjóðs

Í tilefni af fréttaflutningi og fyrirspurnum fjölmiðla í tengslum við greiðslur til framkvæmdastjóra Úrvinnslusjóðs vill ráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:

Við athugun ráðuneytisins kom í ljós að greiðslur til framkvæmdastjóra voru sýnilega umfram það sem kjör hans gerðu ráð fyrir. Í framhaldi af þessari athugun óskaði ráðuneytið eftir skýringum stjórnar Úrvinnslusjóðs með bréfi dags. 26. ágúst sl. og barst svar hennar 15. september sl.

Í kjölfarið, þann 3. október sl., sendi ráðuneytið erindi til framkvæmdastjórans þar sem óskað var skýringa vegna málsins og frestur veittur til 13. október.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum