Hoppa yfir valmynd
21. október 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Til umsóknar: Styrkir til verkefna sem miða að því að vinna gegn fíknisjúkdómum

  - myndStjórnarráðið

Auglýst er eftir umsóknum frá frjálsum félagasamtökum um styrki til afmarkaðra verkefna sem hafa það að markmiði að vinna gegn fíknisjúkdómum. Styrkupphæð til hvers verkefnis getur verið allt að 10 milljónir en alls eru 30 milljónir til úthlutunar.

Tilgangur styrkveitingar er að styðja við verkefni á sviði heilsueflingar og forvarna sem vinna gegn fíknisjúkdómum í samfélaginu.  Þar með talið eru verkefni tengd skaðaminnkun  og snemmtækum inngripum.

Mat á styrkhæfni byggir á að verkefnin byggi á faglegum grunni, hafi raunhæf markmið tengd því að vinna gegn fíknisjúkdómum, hafi skýrt upphaf og endi og árangur þeirra sé metinn.

Í umsókninni þarf að koma fram:

  • Upplýsingar um starfsemi og meginmarkmið félagasamtaka.
  • Nákvæm lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
  • Rökstuðningur fyrir því hvernig verkefninu er ætlað að vinna gegn fíknisjúkdómum.
  • Upplýsingar um framkvæmd árangursmats.
  • Tíma- og verkáætlun.
  • Kostnaðaráætlun.
  • Upplýsingar um samstarfsaðila ef við á.
  • Upplýsingar um aðra styrki sem fengist hafa til verkefnisins.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til og með 30. nóvember 2022. Styrkir verða veittir í desember 2022.

Umsóknir með umbeðnum upplýsingum skulu sendar á netfang ráðuneytisins: [email protected]

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar.

Ekki verður tekið við umsóknum um rekstrarstyrki.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum