Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Norðurlönd – afl til friðar

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna, á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki. - myndNorden.org

Norðurlöndin eiga að vera afl til friðar og friður er undirstaða mannréttinda, félagslegs réttlætis og umhverfis- og náttúruverndar. Þetta hefur verið meginstefið í máli Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna, á þingi Norðurlandaráðs sem nú stendur yfir í Helsinki.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, kynnti í gær formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2023 en yfirskrift hennar er Norðurlöndin afl til friðar. Norðurlöndin og friður hafa sömuleiðis verið meginstefið á þeim ríflega 20 fundum sem Guðmundur Ingi hefur setið síðan á mánudag, bæði í tengslum við Norðurlandaráðsþingið og til að undirbúa komandi formennsku Íslands.

„Norrænu þjóðirnar eru sterkastar þegar þær standa saman. Saman getum við fært fjöll og verið leiðandi á heimsvísu,“ segir Guðmundur Ingi. „Það hefur verið afar ánægjulegt að finna á þinginu þá miklu samstöðu sem er á meðal Norðurlandanna. Formennska Íslands í Norrænu ráðherranefndinni á næsta ári er sannarlega spennandi viðfangsefni.“

Í dag sátu samstarfsráðherrar Norðurlandanna sameiginlega fyrir svörum í fyrirspurnatíma á þingi Norðurlandaráðs og kynntu auk þess greinargerð sína um norrænt samstarf um viðbúnað við krísum. Til umfjöllunar voru meðal annars viðbrögð Norðurlandanna við Covid-19 og hvaða lærdóm draga mætti af þeim til að takast á við aðrar sameiginlegar áskoranir.

Þá tók Guðmundur Ingi þátt í umræðum og sat fyrir svörum með utanríkis- og varnarmálaráðherrum Norðurlanda fyrir hönd utanríkisráðherra Íslands og í umræðum um Hagasamstarfið fyrir hönd dómsmálaráðherra.

Guðmundur Ingi tók einnig þátt í fundum með forsætisnefnd Norðurlandaráðs og átti sömuleiðis fund með fulltrúum Norðmanna í forsætisnefndinni.

Um norrænu ráðherranefndina og formennsku Íslands

Norræna ráðherranefndin er opinber samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna. Þar er unnið að sameiginlegum lausnum á þeim viðfangsefnum þar sem Norðurlöndin geta náð mestum árangri með því að vinna saman. Ísland fer með formennsku í nefndinni árið 2023 og mun leiða samstarfið undir yfirskriftinni „Norðurlönd – afl til friðar“.

Starf Norrænu ráðherranefndarinnar fer fram í 12 nefndum þar sem ráðherrar fagráðuneyta á Norðurlöndunum eiga með sér samstarf eftir málefnasviðum. Vinnan á sér einnig stað í nefndum embættismanna.

  • Norðurlönd – afl til friðar - mynd úr myndasafni númer 1
  • Norðurlönd – afl til friðar - mynd úr myndasafni númer 2
  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson sat ásamt hinum norrænu samstarfsráðherrunum fyrir svörum á þingi Norðurlandaráðs í dag.  - mynd
  • Norðurlönd – afl til friðar - mynd úr myndasafni númer 4

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum