Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2022 Matvælaráðuneytið

Opnað fyrir skil á haustskýrslum

Matvælaráðuneytið hefur opnað fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2022 í Bústofni.

Í samræmi við 10. gr. laga um búfjárhald nr. 38/2013, er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila árlega rafrænni haustskýrslu í Bústofn, eigi síðar en 20. nóvember.

Í haustskýrslunni skal koma fram fjöldi ásetts búfjár af hverri tegund, allt búfé í hagagöngu og á hvaða jörð eða landspildu. Einnig skal koma fram gróffóðuruppskera af hefðbundnum nytjatúnum og leigutúnum ásamt fyrningum og upplýsingum um aðra fóðuröflun og landstærðir.

Skila þarf haustskýrslu í Bústofn eigi síðar en 20. nóvember 2022. Skráning í Bústofn er með rafrænum skilríkjum eða Íslykli

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum