Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagur gegn einelti – hvatningarverðlaun

Eliza Reid, forsetafrú Íslands, Íris Hrund Hauksdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Hólabrekkuskóla, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra - myndMOTIV, Jón Svavarsson

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Eliza Reid forsetafrú Íslands afhentu í dag hvatningarverðlaun dags gegn einelti við hátíðlega athöfn í Helgafellsskóla í Mosfellsbæ. Verðlaunin hlaut Íris Hrund Hauksdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Hólabrekkuskóla.

Dagur gegn einelti var fyrst haldinn árið 2011 til vitundarvakningar og sem hvatning til alls samfélagsins að vinna gegn einelti. Heimili og skóli sér um umsýslu dagsins. Samtökin hafa hvatt skóla til að standa fyrir fræðslu, viðburðum eða táknrænum atburðum sem hvetja til jákvæðra samskipta og efla vináttu í tilefni dagsins.

„Með sérstökum degi helguðum baráttu gegn einelti sköpum við fordæmi fyrir samfélagið og hvetjum til reglulegrar fræðslu og umræðu um einelti og afleiðingar þess,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. „Einelti er mikil meinsemd og getur haft langvarandi áhrif á þau sem verða fyrir því. Öflugt og virkt samstarf heimila og skóla er lykilatriði til árangurs.“

Fagráð gegn einelti hjá Menntamálastofnun valdi verðlaunahafa úr innsendum tilnefningum. Þar segir:

„Íris Hrund Hauksdóttir er faglegur leiðtogi innan skólans sem vinnur markvisst að vellíðan, gleði og velferð allra nemenda. Hún hefur einstakt lag á að ná til nemenda á faglegan og lágstemmdan hátt. Markviss forvarnarvinna sem byggir upp ánægða og sjálförugga nemendur hefur verið hennar megin viðfangsefni og hún vinnur leynt og ljóst í anda farsældarlaganna þar sem áherslan er ávallt lögð á velferð barna. Íris Hrund hefur komið á og stýrt forvarnarteymi skólans og var með þeim fyrstu að koma slíku teymi á fót. Íris leiðir eineltisteymi skólans og stýrir fundum nemendaverndarráðs af fagmennsku og öryggi. Alla daga vinnur Íris með nemendum skólans, hefur opið hús og hvetur nemendur til að koma til sín hvort sem þeir vilja spjalla, ræða erfið mál eða setja sér markmið til framtíðar. Það sem einkennir Írisi Hrund umfram allt er góð nærvera, fagmennska og hvernig hún brennur fyrir velferð og hagsmunum barna.“

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum