Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2022 Forsætisráðuneytið

Upplýsingastefna stjórnvalda samþykkt

Upplýsingastefna stjórnvalda samþykkt - myndHaraldur Jónasson / Hari

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur samþykkt tillögu starfshóps um gerð upplýsingastefnu stjórnvalda að samnefndri stefnu. Þá verður settur á fót starfshópur um mótun aðgerðaáætlunar Stjórnarráðsins um framkvæmd upplýsingastefnunnar.

Upplýsingastefnu stjórnvalda er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir öll stjórnvöld en þar eru sett fram leiðarljós, meginmarkmið og helstu áherslur við miðlun upplýsinga. Meginmarkmið stefnunnar eru þrjú: gagnsæi í störfum stjórnvalda, öflug miðlun upplýsinga og greiður aðgangur að upplýsingum.

Drög að stefnunni voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda í haust og bárust alls átta umsagnir. Umfjöllun um samráð og viðbrögð við umsögnum er að finna í sérstöku niðurstöðuskjali samráðs.

Upplýsingastefna stjórnvalda

Skýrsla starfshóps um upplýsingastefnu

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum