Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Eydís Ásbjörnsdóttir er nýr skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands

Eydís Ásbjörnsdóttir - mynd

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Eydísi Ásbjörnsdóttur í embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands til fimm ára frá 1. desember.

Eydís lauk kennslufræði til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri árið 2006 og hefur verið kennari við Verkmenntaskóla Austurlands frá árinu 1999. Hún lauk sveinsprófi í hársnyrtiiðn í janúar 1998 og hlaut meistararéttindi í sömu grein árið 1999.

Eydís hefur frá árinu 2010 verið kjörinn bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð og hefur í tengslum við það gegnt ýmsum stöðum á sviði sveitarstjórnarmála, en hún var t.a.m. aðalmaður í bæjarráði Fjarðabyggðar um sjö ára skeið, formaður bæjarráðs 20182020 og var forseti bæjarstjórnar 2020–2022. Þá hefur Eydís kennt við Verkmenntaskólann frá 1999 auk þess að hafa rekið eigið fyrirtæki um tíu ára skeið.

Alls sóttu tveir umsækjendur um embættið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum