Hoppa yfir valmynd
8. desember 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2022

Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2022 hefur verið birt ásamt fylgiskjölum á vef nefndarinnar. Í skýrslunni er fjallað um þróun efnahagsmála og launa á samningstímabilinu frá apríl 2019 til júní 2022.

Kjaratölfræðinefnd gefur út tvær skýrslur á ári, að vori og hausti, og er þetta fimmta skýrsla nefndarinnar. Skýrslan skiptist í fimm meginkafla sem fjalla um kjarasamninga gerða í yfirstandandi kjaralotu, efnahagsmál og launaþróun sem flokkuð er eftir heildarsamtökum launafólks annars vegar og atvinnurekendum hins vegar. Einnig er í skýrslunni að finna samanburð á launum karla og kvenna. Í umfjölluninni er áherslan á þá kjaralotu sem er að ljúka, þ.e. tímabilið frá upphafi samningstímabilsins apríl 2019 til júní 2022.

Kjaratölfræðinefnd hóf störf í desember 2019 og er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði. Markmið nefndarinnar er að fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar og sameiginlegur skilningur aðila um laun og efnahag sem nýtast við undirbúning og eftirfylgni kjarasamninga á hverjum tíma.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum