Hoppa yfir valmynd
14. desember 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

20 milljónir króna til hjálparsamtaka sem veita mataraðstoð fyrir jólin

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, úthlutar samtals 20 milljónum króna fyrir jól í styrki til hjálparsamtaka sem styðja við viðkvæma hópa víða um land, einkum með mataraðstoð.

Alls fá níu hjálparsamtök styrk til þess að geta stutt enn betur við þau sem þurfa að leita aðstoðar, sérstaklega nú í aðdraganda jólanna. Þetta eru Hjálpræðisherinn, Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndir í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akranesi, Fjölskylduhjálp Íslands, Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis og Kaffistofa Samhjálpar.

Hjálparsamtökin sinna umfangsmikilli jólaaðstoð á hverju ári.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum