Hoppa yfir valmynd
14. desember 2022 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vanskil heimila og fyrirtækja hjá stóru viðskiptabönkunum lægri en fyrir faraldurinn

Vanskil heimila og fyrirtækja hjá stóru viðskiptabönkunum þremur eru nú lægri en fyrir heimsfaraldurinn. Þetta kemur fram í tölum Seðlabanka Íslands. Þannig voru 0,7% lána heimila í vanskilum í september á þessu árið samanborið við 0,9% um áramót og í september í fyrra.

Um 2,4% lána fyrirtækja voru í vanskilum í lok september á þessu ári en hlutfallið var 3,4% um áramót og 4,2% í september í fyrra.
 
Þá er atvinnuleysi lítið í kjölfar kraftmikillar fjölgunar starfa að undanförnu. Á einu ári hafa nær 13.500 störf skapast í landinu og er atvinnuleysi jafnframt orðið minna en fyrir faraldurinn. Enn er talsverð spenna á vinnumarkaði og fjöldi fyrirtækja vill fjölga störfum á næstu misserum.

Lítil vanskil og lágt atvinnuleysi endurspeglast í niðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofunnar sem kynnt var fyrr á árinu. Þar kemur fram að heimilin töldu gæði eigin lífskjara í, eða nálægt, sögulegu hámarki í fyrra. Samkvæmt könnuninni áttu 75% heimila ekki erfitt með að ná endum saman og aldrei höfðu færri heimili sagst hafa átt erfitt með að láta enda ná saman. Aldrei höfðu færri talið byrði húsnæðiskostnaðar þunga.

Í vikunni kynnti ríkisstjórnin stuðningsaðgerðir vegna kjarasamninga sem koma til viðbótar aðgerðum frá í sumar um stuðning við tekjulága vegna verðbólgu. Aðgerðirnar snúa einkum að stuðningi við lífskjör lág- og millitekjufólks með áherslu á húsnæðismál og aukinn stuðning við barnafjölskyldur. Áhersla er lögð á fjölgun íbúða og uppbyggingu í almenna íbúðakerfinu með auknum stofnframlögum, endurbótum í húsnæðisstuðningi og bætta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda.

Þessar aðgerðir koma til viðbótar aðgerðum frá því fyrr á árinu til að styðja tekjulága vegna verðbólgu. Í maí var ákveðið að fara í umfangsmiklar mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum verðbólgu á viðkvæmustu hópa samfélagsins. Þar var m.a. ráðist í hækkun bóta almannatrygginga og framfærsluviðmið örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega vegna sérstakrar uppbótar hækkað, grunnfjárhæðir húsnæðisbóta fyrir leigjendur hækkaðar umtalsvert og samþykkt að greiða út sérstakan barnabótaauka.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra:


„Síðustu misseri hafa einkennst af mikilli óvissu og sveiflum um allan heim. Það er ekki sjálfsagt að staða heimila og fyrirtækja haldist sterk í gegnum slíka tíma og þess vegna er ánægjulegt að sjá þessa þróun í vanskilum framan af ári. Það er grundvallaratriði í okkar huga að halda áfram að styðja sérstaklega við þá sem mest þurfa, líkt og endurspeglast m.a. í þeim aðgerðum sem kynntar voru í vikunni til að styðja við kjarasamninga,“ segir Bjarni Benediktsson.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum