Hoppa yfir valmynd
23. janúar 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Styrkir til rannsókna á ritmenningu íslenskra miðalda

Samstarfsyfirlýsing um þverfaglegar rannsóknir á ritmenningu íslenskra miðalda var undirrituð 2019. - mynd

Snorrastofa auglýsir nú eftir umsóknum um styrki til rannsókna á ritmenningu íslenskra miðalda fyrir hönd menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

Styrkirnir eru liður í fimm ára átaksverkefni sem hófst árið 2019 í tilefni af því að 75 ár voru liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi. Forsætisráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, menningar- og viðskiptaráðuneytið, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Snorrastofa í Reykholti standa öll að verkefninu.

Hlutverk sjóðsins er að styrkja þverfaglegar rannsóknir á sviði ritmenningar íslenskra miðalda, meðal annars með því að efla rannsóknir á heimildum um ritunarstaði miðaldahandrita á Íslandi og þá sérstaklega á þeim lærdómsmiðstöðvum og klaustrum þar sem ritmenning blómstraði.

Verkefnið skiptist í tvo verkþætti; annars vegar að rannsaka menningarminjar og umhverfi tengt þessum stöðum og hins vegar handrita- og bókmenningu þeirra. Vonir standa til að nákvæmar lýsingar verði unnar á þeim ritmenningarstöðum, sem verða fyrir valinu og rök færð fyrir menningarlegu vægi þeirra handrita og bókmenntaverka sem stöðunum tengjast.

Sótt er um styrki á sérstökum umsóknareyðublöðum sem má finna á heimasíðu Snorrastofu. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar næstkomandi.

Umsóknunum skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um fyrirhuguð verkefni. Sé fyrirhugað að sækja um styrki til verkefnis, sem tekur fleiri en eitt ár að vinna, skal umsækjandi gera grein fyrir heildarmarkmiðum verkefnisins, áfangaskiptingu og kostnaðaráætlun hvers áfanga.

Áætlað árlegt fé til sjóðsins er 35 milljónir króna.

Úthlutanir úr sjóðnum eru á hendi menningar- og viðskiptaráðuneytis að fenginni umsögn sérstakrar úthlutunarnefndar. Snorrastofa hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu unnin í samræmi við þær úthlutunarreglur, sem birtar eru á vef Snorrastofu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum