Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2023 Dómsmálaráðuneytið

Námskeið til undirbúnings prófi til réttinda héraðsdómslögmanns

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið vorið 2023. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnusturéttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Kennslu­greinar í síðari hluta eru: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutningur og önnur störf lög­manna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála. Í tengslum við nám­skeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna. Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi. Kennsla á námskeiðinu fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álfta­mýri 9, 108 Reykjavík. Gert ráð fyrir að þátttakendum bjóðist að taka þátt í gegnum fjarfundabúnað. Við skráningu verða þátttakendur beðnir um að tilg­reina hvort þeir hyggist sitja námskeiðið í kennslusal eða gegnum fjarfunda­búnað.

Stefnt er að því að kennsla á fyrri hluta fari fram dagana 13. til 24. febrúar 2023. (Tímar frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15-17:00 eða 18:00). Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 2. til 16. mars. Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar.

Stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari fram dagana 22. til 31. mars 2023. Þá er stefnt að því að próf í síðari hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 11. til 14.apríl 2023.

Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrra hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi.

Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er kr. 316.000 og greiðist við skráningu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarkerfi á heimasíðu Lögmannafélags Íslands á slóðinni www.lmfi.is. Við skráningu skal leggja fram afrit próf­skírteinis eða vottorð háskóla til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi. Hægt er að senda þær upplýsingar með tölvupósti á netfangið: [email protected] eða senda á skrif­stofu Lögmannafélagsins að Álftamýri 9, 108 Reykjavík.

Frestur til að skrá sig á námskeið er til og með 8. febrúar 2023.

Dómsmálaráðuneytinu 27. janúar 2023

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum