Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum

Menningarsjóður Íslands of Finnlands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna verkefna sem eru fyrirhuguð á síðari hluta ársins 2023 og fyrri hluta ársins 2024. Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Íslands og Finnlands.

Sjóðurinn veitir árlega styrki til einstaklinga, samtaka, félaga og stofnana vegna verkefna sem geta orðið til að efla samskipti Íslands og Finnlands á sviði menningar, lista, atvinnulífs og þjóðlífs almennt.

Frestur til að leggja inn umsóknir um styrki úr sjóðnum vegna tímabilsins rennur út 31. mars 2023.

Einungis er hægt að sækja um rafrænt á vef sjóðsins. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, norsku, finnsku eða ensku.

Fyrirspurnir vegna umsókna má senda á [email protected] og frekari upplýsingar um sjóðinn má finna á vef hans.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum