Hoppa yfir valmynd
13. mars 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frestur til að skila inn tilefningum til Kuðungsins framlengdur til 16. mars

Frestur til að skila inn tilnefningum til umhverfisviðurkenningarinnar Kuðungsins hefur verið framlengdur til 16. mars, vegna misræmis sem var í dagsetningu skilafrests.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2022. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins og hefur sú breyting verið gerð á að tilnefningaflokkarnir eru nú tveir, fyrir stærri og minni fyrirtæki.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 16. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Á síðasta ári hlaut BYKO viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2021.

Upplýsingar um fyrri verðlaunahafa

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum