Hoppa yfir valmynd
15. mars 2023 Forsætisráðuneytið

Oddný Mjöll Arnardóttir sver embættiseið

Oddný Mjöll Arnardóttir - mynd

Oddný Mjöll Arnardóttir mun formlega taka við embætti dómara við Mannréttindadómstól Evrópu í Strassborg í Frakklandi í dag.

Þing Evrópuráðsins kaus Oddnýju Mjöll dómara við Mannréttindadómstól Evrópu 24. janúar sl. en hún var ein af þremur sem tilnefnd voru sem dómaraefni af hálfu íslenskra stjórnvalda. Hún verður fyrsta konan sem er skipuð dómari við Mannréttindadómstól Evrópu af hálfu Íslands.

Mannréttindadómstóll Evrópu var stofnaður árið 1959 á grundvelli Mannréttindasáttmála Evrópu og er aðsetur hans í Strassborg í Frakklandi. Dómstóllinn fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum