Hoppa yfir valmynd
16. mars 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Beint streymi: Hvað geta Norðurlöndin lært af aðgerðunum sem þau gripu til á vinnumarkaði vegna heimsfaraldursins?

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar og Stefano Scarpetta, framkvæmdastjóri hjá OECD, í pallborðsumræðum með Hugin Þór Grétarssyni, pallborðsstjóra og stjórnarformanni Vinnumálastofnunar.  - mynd

Norræn ráðstefna stendur nú yfir á Grand Hótel um það hvað Norðurlöndin geta lært af þeim aðgerðum sem þau gripu til á vinnumarkaði vegna heimsfaraldursins. Ráðstefnan stendur til kl. 16:00 í dag og er haldin í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.

Sjá beint streymi hér að neðan

Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, birtir í dag umfangsmikla úttekt sem liggur til grundvallar ráðstefnunni. Skýrslunni og ráðstefnunni er ætlað að varpa ljósi á viðbrögð norrænna stjórnvalda og áhrif heimsfaraldursins á vinnumarkað Norðurlandanna með það að leiðarljósi að ríkin verði betur í stakk búin þegar áföll verða á vinnumarkaði í framtíðinni.

Sjá dagskrá ráðstefnunnar neðst í þessari frétt.

Meðal þeirra sem taka þátt í umræðum á ráðstefnunni eru Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Stefano Scarpetta, framkvæmdastjóri félags- og vinnumarkaðsmála hjá OECD.

Ráðstefnustjóri er Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og doktor á sviði lýðheilsu, stefnumótunar og stjórnunar. Stjórnandi pallborðsumræðna er Huginn Freyr Þorsteinsson, doktor í heimspeki og stjórnarformaður Vinnumálastofnunar.

Skipuleggjendur ráðstefnunnar eru félags- og vinnumarkaðsráðuneyti og Vinnumálastofnun, í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina og OECD.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum