Hoppa yfir valmynd
23. mars 2023 Dómsmálaráðuneytið

Eftirfylgniskýrsla OECD um mútubrot í alþjóðaviðskiptum

Eftirfylgniskýrsla starfshóps OECD um mútubrot í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery) vegna fjórðu úttektar Íslands var formlega samþykkt á fundi hópsins þann 7. mars síðastliðinn.

Í skýrslunni er einkum lagt mat á árangur íslenskra stjórnvalda við að innleiða tilmæli starfshópsins sem beint var til stjórnvalda í kjölfar 4. úttektar hans á framkvæmd og innleiðingu samnings OECD um mútubrot (e. Anti-Bribery Convention) hér á landi.

Í skýrslunni kemur fram að af þeim 28 tilmælum sem beint var til stjórnvalda hafa 6 þeirra verið innleidd að fullu, 19 hafa verið innleidd að hluta til en 3 tilmæli teljast ekki hafa verið innleidd. Í niðurstöðum skýrslunnar er lögð sérstök áhersla á aðgerðir stjórnvalda til að efla getu til rannsókna á mútubrotum auk nauðsynlegra lagabreytinga sem gerðar voru og varða hámarkslengd refsinga, upptöku eigna, refsiábyrgð lögaðila og refsiákvæði hegningarlaga um mútubrot. Í skýrslunni lýsir starfshópurinn þó einnig áhyggjum yfir því að íslensk yfirvöld hafa enn ekki lokið rannsókn á broti er varðar mútugreiðslur til erlendra opinberra starfsmanna og eru stjórnvöld hvött til að efla enn fremur getuna til að koma upp um og rannsaka slík mál.

Með hliðsjón af því hve mörg tilmæli hafa verið innleidd af hálfu stjórnvalda er ekki gerð krafa um að Ísland skili frekari eftirfylgniskýrslum vegna 4. úttektar en starfshópurinn mun þó áfram fylgjast með framvindu mála hér á landi.

Sjá nánar: 

Fyrri frétt um fjórðu úttektarskýrsluna.

Eftirfylgniskýrsla starfshóps OECD um mútubrot í alþjóðlegum viðskiptum (e. Working Group on Bribery)

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum