Hoppa yfir valmynd
19. apríl 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Styrkir Fjólu, félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu

Sigurjón Einarsson, varaformaður Fjólu, Snædís Rán Hjartardóttir, formaður, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra og Áslaug Ýr Hjartardóttir, gjaldkeri Fjólu. - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur styrkt Fjólu, félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Styrkurinn nemur 1,3 milljónum króna.

Félagið var stofnað árið 1994 og hét fyrst um sinn Daufblindrafélag Íslands en árið 2011 var nafninu breytt í Fjólu – félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Meginmarkmið félagsins er að standa vörð um og berjast fyrir réttindum og menningu fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

Snædís Rán Hjartardóttir, formaður Fjólu, undirritaði styrksamkomulagið fyrir hönd félagsins og með henni voru Áslaug Ýr Hjartardóttir, gjaldkeri, og Sigurjón Einarsson, varaformaður.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum