Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2023 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um setningu í embætti dómara við Landsrétt

Hinn 10. febrúar 2023 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til setningar embætti dómara við Landsrétt vegna leyfis dómara við réttinn til sex ára. Sett verður í embættið til og með 28. febrúar 2029. Umsóknarfrestur var til 27. sama mánaðar og bárust fjórar umsóknir um embættið.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni um umsækjendur og er það niðurstaða nefndarinnar að Ásgerður Ragnarsdóttir héraðsdómari og Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari séu hæfust til að hljóta setningu í embættið, og að ekki verði gert upp á milli hæfni þeirra tveggja.

Dómnefndina skipuðu: Eiríkur Tómasson, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Benediktsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

Umsögn dómnefndar á pdf-formi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum