Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2023 Matvælaráðuneytið

Sextíu tillögur rýndar í samráðsnefnd um sjávarútvegsstefnu

Skip á loðnuveiðum. - myndGolli

Samráðsnefnd verkefnisins Auðlindin okkar hefur nú rýnt þær 60 bráðabirgðatillögur sem starfshópar verkefnisins, Samfélag, Aðgengi, Umgengni og Tækifæri skiluðu í janúar sl.

Nefndin fundaði þrisvar sinnum í febrúar og mars og var tillögunum skipt niður í þrjá flokka til að stuðla að sjálfbærum sjávarútvegi: Umhverfið í öndvegi, Hámörkun verðmæta og Sanngjörn dreifing.

  • Umhverfið í öndvegi tekur til rannsókna og nýsköpunar, verndarsvæða, veiðisvæða og veiðarfæra, umgengni um sjávarauðlindina og orkuskipta í sjávarútvegi
    Í því samhengi voru ræddar hafrannsóknir og mikilvægi eflingar þeirra. Einnig var rætt um orkuskipti, úrgangsmál, fjármögnun tillagna, verndarsvæði í hafi og nýtingu nýrra tegunda.

    Hámörkun verðmæta tekur til kerfa fiskveiðistjórnunar, nýtingar gagna, markaðssetningar, sölu og orðspors og menntunar. Frá þeim útgangspunktum voru rædd veiði- og vinnsluskylda, strandveiði, byggðakvóti og línuívilnun. Að auki var rætt um áhrif sjávarútvegs á byggðaþróun, aukna verðmætasköpun og hagkvæmari nýtingu auðlindarinnar.

    Sanngjörn dreifing tekur til auðlindagjalda, gagnsæi sjávarútvegsfyrirtækja, starfsumhverfis í sjávarútvegi og löggjafar á sviði fiskveiðistjórnunar.

Með fyrrgreind atriði í huga voru rædd áhrif veiðigjalda á mismunandi stærðir útgerða, frekari samþjöppun og áhrif hennar á sjávarbyggðir. Jafnframt voru fyrningarleið og útboð rædd ásamt áhrifum breytinga í sjávarútvegi fyrir þá sem starfa í greininni með tilliti til fyrirsjáanleika og atvinnuöryggis.

Bráðabirgðatillögurnar voru einnig kynntar í samráðsgátt stjórnvalda og bárust þangað tíu athugasemdir. Margar ábendingar og athugasemdir hafa einnig komið fram í umræðum samráðsnefndar og í gegnum netfang verkefnisins [email protected].

Á síðasta fundi samráðsnefndar verkefnisins sem haldinn var 17. apríl sl. kynntu þeir Daði Már Kristófersson prófessor og Gunnar Tryggvason verkfræðingur síðan úttektir sínar á reynslu af uppboðum í auðlindanýtingu. Jón Kristjánsson fiskifræðingur kynnti einnig fyrir nefndinni úttekt á árangri fiskveiðstjórnunar.

Nú stendur yfir vinna við að yfirfara þær ábendingar og þau gögn sem hafa borist og kunna að nýtast við nánari útfærslu tillagnanna. Áætlað er að lokaniðurstöður nefndarinnar liggi fyrir í júní.


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

12. Ábyrð neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
14. Líf í vatni
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
10. Aukinn jöfnuður
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum