Hoppa yfir valmynd
12. maí 2023 Heilbrigðisráðuneytið

​Norrænt samstarf um heilabilun og kynning á FINGER forvarna- og rannsóknaverkefninu

Þekkt forvarna- og rannsóknaverkefni um heilabilun sem kallast FINGER verður kynnt á opnum fundi þriðjudaginn 16. maí næstkomandi. Verkefnið er finnskt og var þróað og skipulagt af prófessor Miiu Kivipelto. Niðurstöður þess hafa vakið athygli fyrir góðan árangur hjá þátttakendum og orðið að fyrirmynd margra forvarnaverkefna á þessu sviði víða um lönd. Kynningarfundurinn er haldinn í tengslum við árlegan vorfund norræna samstarfshópsins um heilabilun sem fram fer í Reykjavík dagana 15. og 16. maí.

Miia Kivipelto hefur lengi unnið að rannsóknum í faraldsfræðum og forvörnum gegn heilabilun. Verkefnið FINGER er þekktasta framlag hennar á þessu sviði. Verkefnið hófst í Finnlandi fyrir meira en áratug. Það fólst í skipulegri samsetningu á nokkrum forvarnaaðgerðum gegn heilabilun fyrir skilgreindan hóp og var árangurinn borinn saman við svipaðan hóp sem ekki tók þátt í verkefninu.

Verkefnið stóð í tvö ár og vakti árangurinn töluverða athygli og hefur orðið að fyrirmynd margra verkefna víða um lönd. Upphaflegum þátttakendum hefur nú verið fylgt eftir í 10 ár og mun Miia kynna þær niðurstöður á fundinum og setja í stærra samhengi. 

Norrænt samstarf um heilabilun

Heilbrigðisráðuneytið og Alzheimersamtökin standa saman að kynningarfundinum um FINGER og er hann liður í vorfundi norræna samstarfshópsins um heilabilun. Formlegt norrænt samstarf um heilabilun hófst árið 2015. Markmiðið með því er að deila og miðla þekkingu um heilabilun í víðu samhengi, m.a. með því að safna og miðla norrænum rannsóknum á þessu sviði og fjalla um góða starfshætti í þjónustu og við umönnun fólks með heilabilunarsjúkdóma.

Fundurinn um FINGER verður haldinn í fundarsal Íslenskrar erfðagreiningar við Sturlugötu 8 í Reykjavík. Hann er öllum opinn og hefst kl. 15.00.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum