Hoppa yfir valmynd
17. maí 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Opið fyrir umsóknir í Fléttuna - styrki til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Fléttuna - styrki til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðistækni og -þjónustu. Umsóknarfrestur er til og með 8. júní.

Fléttan eru styrkir sem veittir eru til nýsköpunarfyrirtækja sem þróað hafa áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista og auka skilvirkni kerfisins. Nafn styrkjanna vísar til þess að turnar heilbrigðiskerfisins hafa löngum verið illkleifir nýsköpunarfyrirtækjum og því þörf fyrir hjálparhönd á borð við langa fléttu Garðabrúðu. Allar nánari upplýsingar um Fléttuna má nálgast hér.

Frumkvöðla- og sprotafyrirtæki geta sótt um styrk. Styrkveiting er þó háð því skilyrði að fyrirtækin eigi í nánu samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem skuldbinda sig til innleiðingar þeirrar nýsköpunar sem sótt er um styrki til. Sérstök áhersla er lögð á stuðning við samstarf hins opinbera og einkaaðila um land allt.

Styrkjum er úthlutað til verkefna sem styðja við innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðistæki, -vörum og -þjónustu. Styrkirnir eru samkeppnisstyrkir og er þeim úthlutað til verkefna til eins árs í senn.

Átaksverkefni um nýsköpun í heilbrigðistækni og -þjónustu

Heildarupphæð Fléttunnar árið 2023 er 100 m.kr., en árið 2022 var 60 m.kr. veitt til verkefnisins og hlutu alls átta verkefni styrk.

Sérstakt fagráð leggur mat á umsóknir og verður m.a. horft til þátta á borð við:

  • Mikilvægi verkefnis fyrir innleiðingu nýrra vara, nýrrar þjónustu eða nýrra hugbúnaðarlausna sem geta bætt þjónustu og/eða aukið hagkvæmni í rekstri heilbrigðiskerfis. 

  • Mikilvægi verkefnis fyrir aukna verðmætasköpun og/eða bætta þjónustu.

  • Skalanleiki verkefnis, þ.e.a.s. hvernig umsækjandi sér fram á þróun verkefnisins, stækkun og nýtingu fyrir fleiri innan heilbrigðiskerfisins með það að markmiði að innleiðingin bæti þjónustu við sjúklinga, stytti biðlista og auki skilvirkni kerfisins.

Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2023.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum