Hoppa yfir valmynd
23. maí 2023 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2023

 

Föstudaginn 12. maí sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1150/2022 fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2023. Útboðsverð tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er.

 

Samtals bárust 26 gild tilboð í tollkvótann.

 

Nautgripakjöt í vörulið 0201/0202. Fjórtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 1.392.051 kg. á meðalverðinu 241 kr./kg.  Hæsta boð var 1.050 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá ellefu fyrirtækjum um innflutning á 348.000 kg á jafnvægisverðinu 550 kr./kg.

 

Svínakjöt í vörulið 0203. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 1.466.000 kg. á meðalverðinu 187 kr./kg.  Hæsta boð var 650 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 350.000 kg á jafnvægisverðinu 380 kr./kg.

 

Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Fjórtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 1.977.400 kg á meðalverðinu 239 kr./kg.  Hæsta boð var 801 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 428.000 kg á jafnvægisverðinu 601 kr./kg.

 

Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið ex0207. Sex tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 415.000 kg á meðalverðinu 90 kr./kg.  Hæsta boð var 600 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg á jafnvægisverðinu 1 kr./kg.

 

Kjöti og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 225.500 kg á meðalverðinu 169 kr./kg. Hæsta boð var 799 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg á jafnvægisverðinu 330 kr./kg.

 

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Sextán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 892.800 kg á meðalverðinu 310 kr./kg. Hæsta boð var 1.200 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá ellefu fyrirtækjum um innflutning á 190.000 kg á jafnvægisverðinu 900 kr./kg.

 

Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Sextán umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 1.092.000 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1150/2022 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 115.000 kg, til níu fyrirtækja.

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

 

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... úr vörulið 1601, samtals 587.500 kg á meðalverðinu 99 kr./kg.  Hæsta boð var 801 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 125.000 kg á jafnvægisverðinu 300 kr./kg.

 

Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Sautján tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 1.071.500 kg á meðalverðinu 246 kr./kg.  Hæsta boð var 1.001 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá ellefu fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg. á jafnvægisverðinu 755 kr./kg.

 

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

25.000

Aðföng

100.000

Ekran ehf

20.000

Garri ehf.

17.950

Háihólmi ehf.

20.000

Innnes ehf.

20.000

Kjötmarkaðurinn ehf.

30.000

Krónan ehf

40.000

LL42 ehf

50

Mata hf

60.000

OJK-Ísam ehf

15.000

Samkaup hf.

 

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

25.000

Háihólmi ehf

40.000

Kjarnafæði Norðlenska hf

7.000

Kjötmarkaðurinn ehf

20.000

Krónan ehf

176.000

LL42 hf

72.000

Mata hf

10.000

Sláturfélag Suðurlands hf.

 

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

100.000

Aðföng

100.000

Ekran ehf

2.000

Garri ehf

10.000

Háihólmi ehf

50.800

Innnes ehf

20.000

Krónan ehf

144.000

Mata hf

1.200

Nautica ehf

 

Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu ex0207

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

14.000

Ekran ehf

7.000

Innnes ehf

20.000

Krónan ehf

14.000

LL42 ehf

45.000

Mata hf

 

Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

15.000

Aðföng

2.000

Ekran ehf.

1.500

Garri ehf

2.000

Innnes ehf.

10.000

Krónan ehf.

5.500

LL42 ehf

13.000

OJK-Ísam ehf

1.000

Samkaup hf

 

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

37.315

Aðföng

2.000

Danól ehf

19.910

Garri ehf

50.000

Krónan ehf.

2.000

Market ehf

1.500

Mata hf.

5.000

Mini Market ehf

4.910

Mjólkursamsalan

45.000

Nathan & Olsen ehf.

15.000

Reykjavík - Napolí ehf

7.365

Samkaup hf

 

Ostur og ystingur ex 0406 Úthlutun gerð á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 1150/2022

Úthlutað magn (kg)

Tilboðsgjafi

17.250

Danól ehf

17.250

Dalsnes ehf.

17.250

Innnes ehf

17.250

Krónan ehf.

17.250

Mata hf.

17.250

ÓJK Ísam ehf.

1.500

Samkaup hf

1.000

Stjörnugrís ehf.

9.000

Svanur ehf.

 

Pylsur og þess háttar vörur 1601

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

8.000

Aðföng

4.000

Ekran ehf

2.000

Innnes ehf.

10.000

Krónan ehf

10.000

LL42 ehf

25.000

Market ehf.

59.167

Mini market ehf.

4.833

OJK – ÍSAM ehf

2.000

Samkaup hf.

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

65.000

Aðföng

4.000

Danól ehf

19.000

Ekran ehf

15.000

Garri ehf

11.000

KFC ehf.

30.000

Krónan ehf

2.000

Market ehf

15.000

Mini Market ehf.

24.000

OJK-Ísam ehf

5.000

Samkaup hf.

10.000

Stjarnan ehf

 

Reykjavík, 23. maí 2023

Matvælaráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum