Hoppa yfir valmynd
24. maí 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Borgarnes: Næsti viðkomustaður í hringferð vegna landsáætlunar

Næsti viðkomustaður í hringferð vegna landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks verður í Borgarnesi í dag, 24. maí, á B59, kl. 17:00. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, býður þessar vikurnar til opinna samráðsfunda um landið vegna landsáætlunarinnar. 

Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og fólk er hvatt til að mæta og taka þátt. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólks á Íslandi.

  • Skrá þátttöku
    Ef þörf er á táknmálstúlkun, rittúlkun eða annarri sérstakri aðstoð er mikilvægt að það komi fram við skráningu

Á fundunum er fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma.

Hringferðin hófst í Reykjanesbæ sl. mánudag með vel heppnuðum fundi í Duus-safnahúsum. Veðrið setti strik í reikninginn vegna fundarins sem fyrirhugaður var á Akureyri í gær og fella þurfti hann niður - en ný dagsetning kemur innan skamms.

Fundirnir fara þannig fram að ráðherra flytur opnunarávarp og kynnt eru nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða er kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga.

Viðkomustaðir í hringferðinni:

22. maí – Reykjanesbær kl. 17 (Bíósalur í Duus-safnahúsum)

23. maí – Akureyri kl. 17 (Hof – Hamrar)

24. maí – Borgarnes kl. 17 (B59)

21. júní – Ísafjörður kl. 12 (staðsetning augl. síðar)

22. júní – Egilsstaðir kl. 17 (staðsetning augl. síðar)

26. júní – Selfoss kl. 17 (Hótel Selfoss)

27. júní – Höfuðborgarsvæðið kl. 17 (staðsetning augl. síðar)

29. júní – Rafrænn fundur fyrir allt landið kl. 20:00

Ágúst – Sauðárkrókur (dagsetning og staðsetning augl. síðar)

Ágúst – Höfn (dagsetning og staðsetning augl. síðar)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum