Hoppa yfir valmynd
31. maí 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Rúmlega 1730 skömmtum af naloxón neyðarlyfi dreift

Rúmlega 1730 skömmtum af naloxón neyðarlyfi dreift - myndHeilbrigðisráðuneytið
Lyf á nefúðaformi sem inniheldur naloxón getur reynst lífsbjargandi sem fyrstu viðbrögð við ofskömmtun ópíóíða. Breytt fyrirkomulag við afhendingu lyfsins hefur bætt til muna aðgengi að lyfinu um allt land, einstaklingum að kostnaðarlausu. Dæmi um lyf/efni sem innihalda ópíóíða eru heróín, metadon, fentanýl, oxýkódon, búprenorfín og morfín.

Naloxón er lyfseðilsskylt og var verklagið lengst af þannig að því var ávísað af lækni beint til sjúklings. Á liðnu ári var verklagi breytt með þeim hætti að læknar geta ávísað lyfinu til fyrirtækja eða stofnana sem þjónusta fólk sem glímir við ópíóíðafíkn og/eða aðstandenda þeirra.

Aukið aðgengi

Frá 1. júlí í fyrra hefur heilbrigðisráðuneytið greitt allan kostnað vegna lyfsins í framhaldi af útboði Landspítala sem sér um birgðahald og dreifingu þess. Fjöldi aðila hefur nýtt sér þetta fyrirkomulag, s.s. heilbrigðisstofnanir víða um land, lögregluembættin, aðilar sem reka gistiskýli fyrir heimilislausa, Rauði Krossinn á Íslandi sem sinnir m.a. sjúkraflutningum og rekur skaðaminnkunarúrræðið Frú Ragnheiði í Reykjavík, á Akureyri og á Suðurnesjum, Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og fleiri aðilar. Frá því að nýtt verklag hófst hafa alls  verið dreift til þessara aðila rúmlega 1.730 skömmtum af naloxón á nefúðaformi.

Mikilvægt að bæta aðgengi enn frekar

Vísbendingar eru um að ofnotkun ópíóíða sé vaxandi vandamál hér á landi. Hefur ríkisstjórnin því samþykkt tillögur Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um aðgerðir til að sporna við þessari óæskilegu þróun. Meðal aðgerðanna var aukin fjárveiting til þess að auka enn frekar dreifingu nefúðans.

Víða erlendis hefur dregið úr dauðsföllum vegna ofneyslu ópíóíða eftir að stjórnvöld juku aðgengi að Naloxón. Með þeim breytingum sem hér hefur verið lýst er því fylgt fordæmum sem gefið hafa góða raun. Heilbrigðisráðuneytið hvetur viðbragðsaðila og aðra þá sem á einhvern hátt koma að þjónustu við einstaklinga með ópíóíðafíkn til að koma sér upp neyðarskömmtum svo unnt sé að veita neyðarmeðferð með lyfinu ef þörf krefur. Mikilvægt er þó að koma viðkomandi undir læknishendur eftir notkun þess til frekari meðferðar.

Lyfinu fylgir fræðsluefni sem mikilvægt er fyrir viðbragðsaðila að kynna sér. Rauði krossin á Íslandi hefur einnig gefið út fræðslumyndband um skyndihjálp í kjölfar ofskömmtunar og notkun naloxón í nefúðaformi.
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum