Hoppa yfir valmynd
9. júní 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Rannsóknasetur fyrir skapandi greinar: opinn kynningarfundur 12. júní

Á dögunum var formlega tilkynnt um stofnun Rannsóknaseturs skapandi greina (RSG) en meginhlutverk þess verður að efla rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina með hliðsjón af fjölþættum áhrifum þeirra á samfélagið. Kynningarfundur um starfsemi setursins og áherslur verður nk. mánudag, 12. júní kl. 15, í húsakynnum CCP í Grósku.   

Þá kemur einnig út lokaskýrsla undirbúningsstjórnar setursins sem inniheldur samantekt þeirrar vinnu sem unnið hefur verið að frá árinu 2021 og undirbyggir áherslur starfsemi setursins fyrstu þrjú árin.

Stofnaðilar setursins eru Háskólinn á Bifröst, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Listaháskóli Íslands og Háskólinn á Hólum. Í stjórn setursins eiga einnig sæti fulltrúar frá Samtökum skapandi greina og menningar- og viðskiptaráðuneyti.

Ör þróun hefur verið í gagnaöflun og rannsóknum á hagrænum sem og menningar- og samfélagslegum áhrifum skapandi greina á alþjóðlegum vettvangi undanfarin ár. Með stofnun RSG er markmiðið að stuðla að sambærilegri þróun hér á landi. RSG mun byggja á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin hérlendis og efla rannsóknir á sviði skapandi greina enn frekar.

Skapandi greinar eru vaxandi drifkraftur í verðmætasköpun þjóðarbúsins og öflugra samfélagi. Fólk sem starfar í skapandi greinum hagnýtir menningu til verðmætasköpunar; hvort heldur efnahagslegrar eða samfélagslegrar. Til skapandi greina teljast m.a. bókmenntir, fjölmiðlun, hönnun og arkitektúr, kvikmynda og sjónvarpsþáttagerð, listnám, safnastarf og miðlun menningararfs, myndlist og starfsemi gallería, sviðslistir, tónlist, tölvuleikjagerð og hugbúnaðarþróun sem þeim tengist og starfsemi auglýsingastofa.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti styður við þróun setursins næstu þrjú ár, með 20 m.kr. árlegu framlagi, en 10 m.kr. fjárveiting til setursins kemur einnig frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti fyrir árið 2023.

Þá styður úthlutun úr Samstarfssjóði háskólanna við starf setursins með 21 m.kr. framlagi til samstarfs Háskólans á Bifröst, Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands um eflingu rannsóknavirkni á sviði menningar og skapandi greina á meistara- og doktorsstigi.

Opni kynningarfundurinn fer fram 12. júní 2023 frá 15-16 í höfuðstöðvum CCP, 3.hæð Grósku, Bjarkargötu 1.

Öll velkomin og skráning fer fram hér.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum