Hoppa yfir valmynd
16. júní 2023 Dómsmálaráðuneytið

Valgerður María skipuð varaformaður kærunefndar útlendingamála ​

Dómsmálaráðherra hefur skipað Valgerði Maríu Sigurðardóttur varaformann kærunefndar útlendingamála. Valgerður var valin úr hópi fimm umsækjanda.

Valgerður María útskrifaðist með meistarapróf frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2008 og diplóma í afbrotafræði frá sama skóla árið 2015. Valgerður María hefur starfað fyrir dómsmálaráðuneytið frá árinu 2008 að fjölbreyttum málaflokkum, meðal annars sem sendiráðunautur ráðuneytisins í Brussel árin 2015 – 2019 og nú síðast sem teymisstjóri útlendingamála frá árinu 2021. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum