Hoppa yfir valmynd
19. júní 2023 Forsætisráðuneytið

Styrkveitingar Jafnréttissjóðs Íslands og samningur um Jafnvægisvog FKA

Forsætisráðherra ásamt styrkþegum úr Jafnréttissjóði. - mynd

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra úthlutaði í dag styrkjum til 11 verkefna úr Jafnréttissjóði Íslands við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica.

Af þessum ellefu verkefnum hlutu fimm hvert um sig um sjö milljón króna styrki sem eru hæstu styrkirnir að þessu sinni. 60 milljónum króna er varið í Jafnréttissjóð Íslands annað hvert ár.

Verkefnin sem hljóta styrk í ár eru:

  • Eliona Gjecaj fyrir verkefnið: Fatlaðar konur og ofbeldi: Aðgengi að réttlæti.
  • Eygló Árnadóttir fyrir verkefnið: Efling íslenskra skóla í forvörnum, fræðslu og viðbrögðum við kynbundnu ofbeldi.
  • Fayrouz Nouh fyrir verkefnið: Múslimskar innflytjendakonur á íslenskum vinnumarkaði.
  • Flora Tietgen fyrir verkefnið: Reynsla innflytjendakvenna af ofbeldi í nánu sambandi á Íslandi.
  • Hafdís Erla Hafsteinsdóttir fyrir verkefnið: Kynjapólitískur vígvöllur? Alnæmisfaraldurinn á Íslandi og áhrif hans á hugmyndir um jafnrétti.
  • Ásdís Aðalbjörg Arnalds fyrir verkefnið: Alþjóðlega viðhorfakönnunin um fjölskyldulíf og breytt kynhlutverk.
  • Elín Björk Jóhannsdóttir fyrir verkefnið: Fléttur VII. Hinsegin Ísland í alþjóðlegu samhengi.
  • Helena Aðalsteinsdóttir fyrir verkefnið: LungA Listahátíð.
  • Jeannette Jeffrey fyrir verkefnið: Exploring an Inclusive Post-Pandemic Language Learning Environment for Icelandic Language Learners.
  • Linda Dögg Ólafsdóttir fyrir verkefnið: Við þorum, getum og viljum!
  • Ofbeldisforvarnarskólinn ehf. fyrir verkefnið: Geltu - stuttmynd um hatursorðræðu.

Myndir frá styrkveitingum Jafnréttissjóðs 2023

Þá endurnýjuðu forsætisráðherra, og Ásta Dís Óladóttir formaður Jafnvægisvogarráðs FKA (Félag kvenna í atvinnulífinu), samstarfssamning um Jafnvægisvogina.

Með samningnum veitir forsætisráðuneytið FKA stuðning til að stuðla að auknu kynjajafnrétti í íslensku atvinnulífi en Jafnvægisvogin er mælitæki sem hefur eftirlit með stöðu og þróun kynjajafnréttis í stjórnum íslenskra fyrirtækja. 

Samningurinn er til eins árs og gildir frá 19. júní 2023 til 19. júní 2024.

  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásta Dís Óladóttir, formaður Jafnvægisvogarráðs FKA. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum