Hoppa yfir valmynd
28. júní 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Samstarf háskóla 2023: Opið fyrir umsóknir

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ásamt fulltrúum háskólanna við undirritun samninga um samstarfsverkefni í júní 2023. - myndLjósmynd: Birgir Ísleifur

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur opnað fyrir umsóknir í Samstarf háskóla. Ætlunin er að úthluta allt að einum milljarði króna til verkefna sem snúa að auknu samstarfi háskóla á yfirstandandi ári. Umsóknarfrestur er til og með 15. október næstkomandi.

Háskólar og samstarfsaðilar þeirra skila umsóknum til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins og verða nánari leiðbeiningar sendar á rektorsskrifstofur skólanna. 

Við mat á umsóknum verður horft til áætlaðs ávinnings af verkefnunum, nýnæmis þeirra og gæði verk- og kostnaðaráætlana, en framlög geta numið allt að 80% af heildarkostnaði verkefna. Í úthlutunarreglum,  er að finna nánari lýsingar á þeim kröfum sem gerðar eru til umsókna.

Samstarf háskóla veitir íslenskum háskólum fjárhagslegan hvata til að auka samstarf sín á milli. Vonast er eftir að háskólarnir sjö sýni frumkvæði í greiningu á samstarfsmöguleikum sín á milli og sjálfstæði í vali verkefna sem styðja við nýsköpun og framfarir á háskólastigi. Samstarfi háskóla er ætlað að auka gæði háskólastarfs, skilvirkni í rekstri og samkeppnishæfni íslenskra háskóla og um leið tryggja að fjármunum sé veitt til háskólastigsins með gagnsæjum hætti og efna til samkeppni um umbótaverkefni á breiðari grundvelli en áður.

Úthlutuninni er einnig ætlað að styðja við stefnumörkun á háskólastigi og eru háskólar hvattir til að tengja umsóknir við þær áherslur sem hafa verið settar fram í stefnu stjórnvalda, t.a.m. stjórnarsáttmála, fjármálaáætlun og þingsályktunartillögu um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi. Að þessu sinni eru sex áherslur tilgreindar sem samstarfsverkefnum er ætlað að styðja við:

  1. Sameiningu háskóla.
  2. Stjórnsýslu, stoðþjónustu og nýtingu innviða til að auka gæði, hagkvæmni og skilvirkni.
  3. Lausnir við samfélagslegum áskorunum svo sem loftslagsmál, heilbrigðisþjónustu og gervigreind.
  4.  Nýsköpun í háskólastarfi, svo sem með nútímalegri kennsluháttum, þverfaglegu námi og fjarnámi.
  5. Alþjóðlega sókn íslenskra háskóla og alþjóðavæðingu.
  6. Iðkun á þriðja hlutverki háskóla svo sem með áherslu á lýðræðislega umræðu, íslenskunám og fjölgun nema í háskólum með áherslu á fjölbreytni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum